Víkingasalur

Í tæplega 40 ár hefur Víkingasalur Hótel Loftleiða verið vettvangur mannfagnaðar við margvíslegustu tækifæri. Salurinn er þannig hannaður að hægt er að  þjóna litlum hópum til allt 500 manns

Nýverið voru salarkynni og aðstaða endurbætt og breytt á glæsilegan hátt

Ráðstefnur, fundir, vörukynningar ofl. Hótel Loftleiðir bjóða upp á vel útbúna funda- og ráðstefnusali fyrir jafnt smáa sem stærri atburði.

Ráðstefnuþjónar og tæknimenn sjá um að sinna þeim verkum sem þarf svo samkoman fari sem best fram. Ráðstefnusalirnir eru með útbúnað, tækni og
þjónustu við allra hæfi.