Ráðstefnur og fundir á Hótel Loftleiðum, Reykjavík


Við bjóðum upp á 12 fundar- og ráðstefnusali sem rúma allt frá 4 upp í 450 gesti í sæti. Ráðstefnu- og fundaraðstaða á Hótel Loftleiðum hentar jafnt fyrir minni fundi og viðburði sem og stærri ráðstefnur, sýningar og kynningar. Öll aðstaða og þjónusta fyrir vel hepnaða ráðstefnu / fund á sama stað.

JT Veitingar bjóða upp á hádegis- og kvöldverðarhlaðborð á hverjum degi ásamt matseðli og að fundi loknum er svo alltaf hægt að skella sér í sund og gufu eða í fótanudd á Dong Fang Salon.


Ráðstefnuaðstaða


Aðalráðstefnusalur Hótel Lofteiða rúmar allt að 450 gesti í sæti, að auki er hægt að skipta honum niður í 3 minni fundarsali. Við bjóðum einnig upp á Bíósal sem rúmar 110 gesti í sæti, og hentar vel hvort sem er fyrir fyrirlestra eða bíósýningar, og minni fundarherbergin rúma allt frá 4 gestum og upp úr. Tölvuaðstaða /-herbergi með tölvu, internetaðgangi og prentara, ásamt ljósritunarþjónustu, er til afnota allan sólarhinginn.


Tækjabúnaður


Aðgangur að þráðlausu interneti er í allri fundaraðstöðu. Í öllum fundar- og ráðstefnusölum eru skjávarpi og tjald, fletti- og tússtafla, blöð og pennar. Í aðalráðstefnusalnum og bíósalnum er einnig hljóðkerfi, ræðupúlt með hljóðnema (og tölvu í Þingsal 1), ásamt túlkaaðstöðu.

Þjónusta


Fundaraðstaða er undirbúin fyrir komu gesta og þingfreyjur / -þjónar eru til aðstoðar yfir fundartíma ásamt tæknimanni. Veitingar eru bornar fram eftir óskum. Við aðstoðum þig við undirbúning og skipulag hvers viðburðar og bjóðum upp á vingjarnlegt andrúmsloft, fagmennsku og sveigjanleika.


Fyrir frekari upplýsingar:


netföng: loftleidir@icehotels.is og conference@icehotels.is
eða í síma (+354) 444 4020 eða (+354) 444 4040


Hér geturðu skoðað teikningar af sölunum