Veitingasalurinn Lónið sem býður glæsilegt hlaðborð í hádegi og á kvöldin ásamt a’La Carte seðli, morgunverðar- og kaffihlaðborð er vinsæl meðal einstaklinga jafnt sem hótelgesta og mikið um að fólk í viðskiptalífinu sameini viðskiptafund og góða máltíð þar.
Nýverið voru salarkynni og aðstaða endurbætt og breytt á glæsilegan hátt.
Við veitingasalinn Lónið er Lónsbar með úrval áfengra og óáfengra drykkja. Afgreiðslutíminn er frá kl. 12:00 á hádegi til kl.; 1 eftir miðnætti alla daga.