JT veitingar

JT veitingar tóku við rekstri veitingasala Hótel Loftleiða 2000, en veitingamennirnir  Jón Ögmundsson og Trausti Víglundsson reka fyrirtækið. Báðir hafa þeir áratuga  reynslu af veitingastörfum og rekstri á því sviði. Jón starfaði áður sem veitingastjóri á Hótel Esju og Hótel Loftleiðum þar sem hann var einnig ráðstefnustjóri. Trausti starfaði um áratugaskeið á Hótel Sögu meðal annars sem veitingastjóri.